Daginn, kveldið.. hvað sem á við. Í dag lenti ég í þeim óþverra að
horfa á myndbandið þar sem breskir hermenn eru að lúskra á íröskum
ungmennum og verð ég að segja að ég hef ekki séð jafn mikinn vibbaí
langan tíma.. ég verð mjög sjaldan "reiður" yfir svona myndböndum
en þarna já.. væri ég alveg til í að leyfa þessum einstaklingum að
smakka á sínu eigin meðali.
Annars var gert lítið um helgina nema kúrað og unnið smá á
laugardeginum og eru þannig helgar bara mjög ákjósanlegar og
vonandi mun ég eiga margar slíkar í framtíðinni því jú djammið er
orðið svolítið þreytt eitthvað og að sjálfsögðu er fátt betra en
kúrið

en auðvitað er fínt að skella sér út á lífið af og til í
hópi góðra vina.. En vá yfir í allt önnur mál úff hvað þessir lost
þættir eru orðnir svo mikið bull, sjaldan séð jafn leiðinlegan
þátt, ok fyrsta sería byrjaði vel en núna er þetta orðið svo teygt
og þreytt að það ég væri miklu frekar til í að horfa á The Barney
show í 3klst heldur en þennan sora.
Sama með The O.C. ok allt í lagi fyrstu þættirnir en svo verður
þetta bara grátlegt, en útaf einhverjum ástæðum sækir fólk enn í
þetta af miklum mætti

crazy peeps..
Var með ágætan svefngalsa en fannst þessi mynd nokk skondin ;]
Kv, iGogg the not so fond of dramatic tv shows guy.